Skip to content

Miðlun

midlun.jpg
Kannanir fyrir ferðaþjónustuna

Miðlun og RRF (Rannsóknir og ráðgjöf ferðaþjónustunnar) hafa undirritað samkomulag um víðtækt samstarf. Markmiðið er að veita ferðaþjónustunni umfangsmikla þjónustu hvað varðar kannanir. Nú þegar hafa aðilar unnið sameiginlega að könnunum fyrir markaðsskrifstofur landshlutanna, ferðamálayfirvöld, sveitastjórnir og einstaka rekstraraðila í ferðaþjónustu. Haustið 2010 kemur frá Miðlun/RFF umfangsmikil könnun á ferðatilhögun íslenskra ferðamanna innanlands.

RFF er ráðgjafarfyrirtæki rekið af Rögnvaldi Guðmundssyni. Rögnvaldur hefur um árabil gert kannanir meðal erlendra ferðamanna og starfað sem ráðgjafi um málefni ferðaþjónustunnar. Rögnvaldur er jafnframt formaður félags um sögutengda ferðaþjónustu.

Miðlun væntir mikils af þessu samstarfi - ferðaþjónustan er í sókn og Miðlun/RFF er vel í stakk búin til að standa við bakið á stofnunum og fyrirtækjum ferðaþjónustunnar í þeirri uppbyggingu sem er framundan.