Skip to content

Miðlun

midlun.jpg
Útvistun á símsvörun

Þeim fyrirtækjum sem velja að útvista símsvörun fer stöðugt fjölgandi. Sparnaður og hagræði fyrirtækjanna er í mörgum tilvikum augljóst. Hér eru nokkur dæmi:

Einn af viðskiptavinum okkar er Harpa, tónlistar- og ráðstefnuhús. Þegar stórir viðburðir fara í sölu er mikið hringt í Hörpuna. Það væri útilokað fyrir þá að sinna öllum símtölum sem berast og þjóna á sama tíma þeim viðsiptavinum sem koma í húsið. Lausnin er að hafa tiltekinn fjölda starfsmanna á staðnum sem geta sinnt meðalálagi - þegar starfsmenn Hörpu ráða ekki við meira flytjast símtölin til okkar. Þannig nær Harpa að veita afburðaþjónustu með lámarks kostnaði.

Landmælingar Íslands höfðu sérstakan starfsmann til að sinna símsvörun og tilfallandi verkefnum. Fyrir nokkrum árum var tekin ákvörðun um að útvista símsvörun og nýta starfsmanninn til annarra hluta. Magnús Guðmundsson forstjóri Landmælinga hefur sagt frá því opinberlega að sparnaður vegna útvistunar á símsvörun sé 2-3 milljónir á ári.

Meðal viðskitpavina okkar er meðalstórt útflutningsfyrirtæki sem flytur út sjávarafurðir. Þeir voru með tvo starfsmenn sem sinntu símsvörun. Til að tryggja að ávallt væri einhver á staðnum var hvor starfsmaður í 60% starfshlutfalli. Kostnaður við þetta starfsmannahald var 4-5 milljónir á mánuði. Kostnaður við útvistun á símsvörun er rúmlega ein milljón á ári - sparnaður 3-4 milljónir á ári. Þar sem áður var móttökuborð er nú sófasett.

Lítil fyrirtæki geta líka haft mikið hagræði af útvistun símsvörunar. Meðal viðskiptavina okkar er sérhæft hugbúnaðar- og ráðgjafarfyrirtæki þar sem dýrir sérfræðingar starfa. Starfsmennirnir eru sjaldan við skrifborðið og enginn með það skilgreinda hlutverk að svara í símann. Í slíkum fyrirtækjum er upplagt að útvista símsvörun. Kostnaðurinn er óverulegur miðað við þann kostnað sem hlýst af því að láta starfsmenn svara eða missa símtöl.

Sögurnar eru fleiri - símsvörun er sérhæfð þjónusta sem rétt er að útvista með sama hætti og hreingerningum og öryggisþjónustu.