|
Ráðgjöf og þjónusta á sviði viðskiptatengsla |
|
Miðlun ehf er ráðgjafar- og þjónustufyrirtæki á sviði viðskiptatengsla. Við aðstoðum viðskiptavini okkar með því að sinna símsvörun, hringja í fyrirtæki og almenning, gera skoðanakannanir og hafa milligöngu um viðskipti fyrirtækja og neytenda. Hjá Miðlun starfa sérfræðingar á sviði viðskiptatengsla og fjöldi lausráðinna starfsmanna sem annast úthringingar og önnur verkefni. Í starfsstöð félagsins Nóatúni 17, Reykjavík er rekið fullkomið samskiptaver með 30 vinnustöðvum.
Okkar lausnir eru einfaldar og árangursríkar, unnar í nánu samstarfi við viðskiptavinina. Við stöndum við loforð okkar og leggjum áherslu á góða faglega þjónustu.
|
|