
| Bæjarhátíðir |
|
Bæjarhátíðir eru business - í fjölmiðlum kom fram að Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum veltir um 700 milljónum! Fiskidagurinn í Dalvík dregur að þúsundir gesta sem annars mundu vita lítið um þetta sjávarþorp. Viðskiptin og ímyndin skipta máli - enda margar hátíðir sem berjast um gestina. Miðlun gerði könnun meðal almennings á Íslandi í apríl. Spurt var "telur þú að hátíðir/bæjarhátíðir hafi mikil áhrif á hvaða staði þú ferðast til innanlands í sumarleyfinu, 35% landsmanna töldu svo vera, það eru tugir þúsunda ferðalanga. Við spurðum líka hvaða hátíðir viðmælandinn teldi áhugaverðastar. Í fyrsta sæti var Fiskidagurinn mikli í Dalvík - 35% töldu það áhugaverðustu hátíðina, þjóðhátíð í Vestmannaeyjum náði bara fjórða sæti. Tvær tónlistahátíðir náðu ofarlega á listann, Aldrei fór ég suður á Ísafirði og Bræðslan á Borgarfirði eystri. Listinn er langur og mikið af óvæntum niðurstöðum. Í könnuninni koma fram áhugaverðar upplýsingar um ólíkar skoðanir fólks eftir kyni, búsetu, tekjum o.fl. Þeir tekjuhæstu telja Menningarnótt í Reykjavík áhugaverðasta (hafa ekki tíma til að fara úr vinnunni?) og konur vilja helst fara til.....! |