Skip to content

Miðlun

midlun.jpg
Hringjum í mannskapinn

Þegar markaðsmenn tala um fámennið á Íslandi segja þeir gjarnan sögu af ameríska ráðgjafanum sem fenginn var til að skipuleggja viðamikla kynninga- og auglýsingaherferð á Íslandi. Þegar undirbúningurinn var búinn og markaðsáætlun, birtingaáætlun, PR - áætlun og kostnaðaráætlun lágu fyrir heyrði ráðgjafinn útundan sér að á Íslandi væru búsettir 320.000 einstaklingar á 120.000 heimilum. "Af hverju hringið þið ekki bara í fólkið" sagði ráðgjafinn, pakkaði niður og fór heim.

Á Íslandi eru 120.000 heimili - af þessum heimilum eru u.þ.b. 80.000 sem heimila hringingar í markaðslegum tilgangi. Það er hægt að hringja í þennan hóp fyrir 20 - 40 milljónir og hjá Miðlun tekur það ekki nema tæpa þrjá mánuði!

Það eru merkileg skilaboð í sögunni um ameríska ráðgjafann - við búum í örsamfélagi. Stundum er bara einfaldast og ódýrast að hringja í mannskapinn!