Skip to content

Miðlun

midlun.jpg
Frábær árangur með Skeljungi

Við höfum unnið fyrir Skeljung undanfarna mánuði. Þeir hafa verið að endurskilgreina starfsemi sína með því að leggja meiri áherslu á vörumerkið Orkan og ódýrara eldsneyti. Á sama tíma hafa þeir boðið meiri þjónustu og betra bensín á Skeljungsstöðvunum.

Þetta er flókið markaðsverkefni þar sem margir aðilar koma að verki. Okkar hlutverk er að hringja í landsmenn og bjóða Orkulyklana. Árangurinn hefur verið mjög góður, á nokkrum mánuðum höfum við stuðlað að dreifingu mörg þúsund Orkulykla sem vonandi leiða til mikilla viðskipta fyrir Skeljung.

Á sama tíma höfum við mælt áhuga almennings á að versla við Orkuna. Fyrsta mæling var gerð í nóvember/desember 2009. Spurt var "ef þú værir að hefja viðskipti við bensín/olíufyrirtæki, hvaða fyrirtæki mundir þú velja?" Niðurstöður könnunarinnar voru að 16,1% aðspurðra svörðuð því til að Orkan yrði fyrir valinu. Í sambærilegri könnun sem gerð var hálfu ári síðar var niðurstaðan að 27,5% svarenda völdu Orkuna. Þetta er aukning um meira en 10% og líklega 20 - 30.000 neytendur. Sannarlega frábær árangur hjá Skeljungi og heiður að fá að taka þátt í þessu verkefni.