Skip to content

Miðlun

midlun.jpg
Gott kvöld, ég heiti ..

Gott kvöld, ég heiti Jón og hringi frá Tryggingum hf. Þú hefur verið viðskiptavinur okkar í þrjú ár - okkur langaði til að heyra í þér og þakka kærlega fyrir viðskiptin. Við værum ekki til staðar ef ekki væri fyrir viðskiptavini eins og þig. Vertu blessaður/blessuð.

Hefur þú fengið svona símtal frá tryggingafélaginu þínu? Sennilega ekki - ekki heldur frá bensínstöðinni, bankanum, bílasalanum, símafyrirtækinu, orkusalanum eða lífeyrissjóðnum. Samt ert þú búinn að borga þessum aðilum peninga mánuðum eða árum saman.

Er ekki kominn tími til að þeir þakki þér fyrir?