Skip to content

Miðlun

midlun.jpg
Samtal við viðskiptavini

Sem neytendur höfum við skoðanir á öllu milli himins og jarðar - okkur finnst tryggingafélagið okkar dýrt, leiðinlegt að hringja í símafélagið vegna þess að við erum alltaf númer 14 í röðinni. Við förum helst ekki í matvöruverslunina vegna þess að okkur finnst kælirinn óþrifalegur, förum ekki á tiltekin veitingahús vegna þess að þjónustan er lélega og förum aldrei inn í tiltekna verslun vegna þess hvað afgreiðslufólkið er dónalegt. Við höfum margar skoðanir sem við látum í ljós með einum eða öðrum hætti.

Það er merkilegt að fyrirtækin sem eru að þjóna okkur virðast ekki hafa minnsta áhuga á skoðunum okkar - hvenær var síðast hringt frá símafyrirtækinu til að spyrja hvernig okkur líkað þjónustan, eða tryggingafélaginu, bankanum, öryggisfyrirtækinu, fjölmiðlafyrirtækinu, orkuveitunni, bílasalanum - líklega hafa þeir aldrei hringt til að spyrja okkur álits.

Miðlun bíður nú fyrirtækjum nýja þjónustu - Samtal við viðskiptavini. Við hringjum fyrir hönd fyrirtækjanna í viðskiptavini þeirra, bæði fyrirtæki og einstaklinga. Við þökkum fyrir viðskiptin fyrir hönd fyrirtækjanna, ræðum við viðmælandann um reynslu þeirra af fyrirtækinu eða vörum þeirra og hlustum eftir ógnunum eða tækfærum. Unnið er úr öllum upplýsingum sem fram koma í símtölunum og niðurstöðurnar settar fram í skýrslu. Efni skýrslunnar og niðurstöður eru síðan ræddar á skilafundum.

Þetta er góð leið fyrir fyrirtæki til að heyra í viðskiptavinum sínum.