
| Gula línan |
|
Við önnumst auglýsingabirtingar á netinu, ritstýrum og sendum út rafræn fréttabréfa, leiðbeinum um markaðsaðgerðir og upplýsingamiðlun á samskiptavefjum og veitum aðra þjónustu sem gera viðskiptavini okkar sýnilega á netinu. Við rekum upplýsingasíma um vörur og þjónustu undir nafni Gulu línunnar. Auglýsing á leitarvélinni Google er einn virkasti auglýsingamiðill sem völ er á. Gula línan hefur um árabil selt auglýsingar á Google - við skilgreinum nauðsynleg leitarorð, setjum upp og vöktum auglýsinguna gegn föstu árgjaldi. Rafrænt fréttabréf er ódýr og góður miðill til að halda utan um núverandi viðskiptavini og afla nýrra. Gula línan annast ráðgjöf og uppsetningu á fréttabréfum, ritstjórn útsendingu og eftirfylgni. Við sendum reglulega út eigin fréttabréf um rafræn viðskiptatengsl og fjölda fréttabréfa/rafrænna tilkynninga fyrir viðskiptavini okkar. Samskiptamiðlar eiga að vera mikilvægur hlekkur í markaðsstarfi allra fyrirtækja - mikilvægasti og jafnvel eini hlekkurinn fyrir sum fyrirtæki. Gula línan annast einstakar markaðsaðgerðir á samskiptamiðlum eða veitir viðvarandi þjónustu með því að annast viðskiptatengsl fyrirtækja á Facebook og öðrum samskiptavefjum. Símaþjónusta Gulu línunnar aðstoðar fyrirtæki að selja og neytendur að kaupa. Fyrirtæki kaupa skráningar í gagnagrunn Gulu línunnar. Skráning felur í sér almennar upplýsingar um fyrirtækið ásamt ítarlegri skráningu á vörum og þjónustu viðskiptavinarins. Neytendur afla upplýsinga hjá Gulu línunni með því að hringja í síma 1444 eða leita upplýsinga á vef Gulu línunnar www.gulalinan.is. Árlega berast um 300.000 fyrirspurnir um vörur og þjónustu til Gulu línunnar. Nánari upplýsingar veitir: |