
| Iceland Seafood í símaþjónustu |
|
Við höfum lokið innleiðingu á nýjum viðviðskiptavini í símaveri. Iceland Seafood er alþjóðlegt fyrirtæki sem starfar við sölu og markaðssetningu á fiskafurðum. Fyrirtækið er stórt og öflugt - meðal þeirra fyrirtækja sem halda okkur Íslendingum í fremstu röð í veiðum, vinnslu og verslun með fisk. Við önnumst símsvörun á skiptiborði fyrir Iceland Seafood og erum stolt af því að fá þá sem viðskiptavin. Við viljum aðstoða viðskiptavini okkar að vaxa og dafna. Í tilviki Iceland Seafood viljum við leggja lóð á vogarskálina með því að veita góða staðlaða þjónustu sem tryggir óaðfinnanlega þjónustu við viðskiptavini þeirra. Á sama tíma viljum við auka hagkvæmni og stuðla að sparnaði. |