
| Blind börn á Íslandi |
|
Í febrúar lukum við skemmtilegu verkefni sem við vinnum árlega. Við hringjum í fyrirtæki og seljum sælgæti fyrir öskudaginn. Allur hagnaður af sölunni rennur óskiptur til sjóðsins Blind börn á Íslandi - þessi hagnaður var 400.000 þetta árið. Fyrirtækin fá sælgæti sent heim og gefa það syngjandi börnum. Blind börn á Íslandi njóta ágóðans í formi styrkja til tölvukaupa og til annarra verkefna. Sjóðurinn Blind börn á Íslandi hefur það hlutverk að veita börnum fjárhagslegan styrk og stuðning til ákveðinna verkefna og tækifæra sem efla þátttöku þeirra í samfélaginu. Næst verður styrkjum úr sjóðnum úthlutað á Sumardaginn fyrsta eins og venja hefur verið undanfarin ár. |