
| Stór og lítil úthringiverkefni |
|
Flest verkefni við úthringingar eru stór, viðamikil og standa í langan tíma. Við eigum viðskiptavini sem óska eftir að við hringjum í öll heimili á Íslandi. Í eina tíð var sagður sá brandari að íslenskur markaður væri svo lítill að það tæki því ekki að auglýsa, best væri að hringja bara í mannskapinn. Þetta er sem sé ekki brandari heldur raunveruleiki fyrir suma af okkar viðskiptavinum. Oft tökum við líka að okkur lítil verkefni. Við erum nýbúin að ljúka einu slíku. Viðskiptavinur okkar sem fæst við markaðsrannsóknir bað okkur að boða 20 manns í rýnihóp til að ræða um auglýsingar. Skemmtilegt verkefni sem tók okkur skamma stundi enda gjafabréf í boði fyrir þá sem þekktust boðið. Annað lítið verkefni bíður vinnslu - að hringja í nokkur hundruð fyrirtæki til að selja þátttöku í áhugaverðri ráðstefnu sem verður haldin hér með vorinu. Við ætlum að leggja okkar að mörkum til að fylla ráðstefnuna! |