Skip to content

Miðlun

midlun.jpg
Kannanir

Miðlun annast gerð skoðana- og viðhorfskannana. Fyrirtækið rekur úthringiver til gagnaöflunar fyrir símakannanir og veitir alhliða þjónustu við gerð netkannana. Starfsemin byggir á viðurkenndum fræðilegum vinnubrögðum við gerð slíkra kannana.

Netkannanir/spurningavagn

Við veitum alla almenna þjónustu við gerð netkannana, hvort sem leitað er svara frá starfsfólki/viðskiptavinum fyrirtækja (byggt á netföngum frá verkkaupa) eða almenningi (byggt á netpanel Miðlunar).

Spurningavagn Miðlunar er framkvæmdur mánaðarlega. Vagninn er sendur einstaklingum á aldrinum 18-75 ára í tölvupósti. Niðurstöður byggja á 800 svörum hverju sinni - svörun er kvótastýrð byggt á lýðfræðilegum breytum. Svarhlutfall er að jafnaði 50 - 60%. Einstaklingar sem fá vagninn sendan eru valdir með tilviljanakenndum hætti úr þjóðskrá. Gögnum er skilað í rafrænum skýrslum - með einfaldri myndrænni framsetningu og krosstöflum sem taka mið af bakgrunnsbreytum s.s. kyni, aldri, búsetu, starfi, menntun og heimilistekjum.

SPOR

SPOR eru kannanir sem gerðar eru fyrir valdar atvinnugreinar s.s. banka, tryggingafélög, símafyrirtæki, lífeyrissjóði, stéttarfélög o.fl. Í SPOR könnunum er spurt staðlaðra endurtekinna spurninga sem gefa einfalda mynd af þróun á viðkomandi markaði. SPOR er hentug og hagkvæm leið til að fá yfirlit yfir þróun einstakra markaðsstærða fyrir valda markaði.

Undir vörumerkinu SPOR eru gerðar þjónustukannanir fyrir fyrirtæki, kannanir meðal starfsmanna, kannanir á gæðum símaþjónustu og aðrar staðlaðar einfaldar netkannanir.

Símakannanir

Miðlun hefur annast gagnaöflun með úthringingum fyrir Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands, aðra háskóla, vísindastofnanir og ráðgjafarfyrirtæki. Í slíku samstarfi vinnur Miðlun að gagnaöflun en samstarfsaðilar að undirbúningi og greiningu gagna. Símakannanir henta vel þegar um er að ræða flókna og viðamikla spurningalista.

Nordic Research Alliance

Miðlun er aðili að Nordic Research Alliance og getur því boðið viðskiptavinum sýnum þjónustu á öllum Norðurlöndunum. Fyrirtækin innan Nordic Research Alliance eru með yfir 100.000 Norðurlandabúa í netpanel og aðstöðu til að gera símakannanir á öllum mörkuðum. Þau stunda eigindlegar og megindlegar rannsóknir og bjóða allar almennar rannsóknarvörur s.s. netkannanir, símakannanir, fókushópa, hulduheimsóknir o.fl. Fyrirtækin innan Nordic Research Alliance eru:

Analyse Danmark, Kaupmannahöfn, (www.analysedenmark.dk)
Midlun, Reykjavík, (www.midlun.is)
Novus Group, Stokkhólmur, (www.novusgroup.se)
Response Analyse, Oslo, Bergen, (www.responsanalyse.no)

 

Nánari upplýsingar veitir:
Árni Zophoniasson
Netfang: arni(at)midlun.is
Sími: 824 8085