Skip to content

Miðlun

midlun.jpg
Símaver

Símaver Miðlunar annast símsvörun fyrir fyrirtæki og stofnanir. Fyrirtæki úthýsa símsvörun til að einfalda verkferla og skapa rými til að sinna betur kjarnastarfseminni. Miðlun vinnur náið með fjölmörgum íslenskum fyrirtækjum með því að svara símanum á álagstoppum, sinna almennri símsvörun á skiptiborði, taka niður pantanir eða selja vörur og þjónustu í síma.

Við leggjum áherslu á agaða vinnuferla, vel þjálfað starfsfólk og nána samvinnu við viðskiptavini.  Við viljum að þjónusta Miðlunar sé mikilvægur þáttur í velgengni viðskiptavina okkar.

Nánari upplýsingar veitir:
Arni Zophoniasson
Netfang: arni(at)midlun.
Simi: 824 8085