
| Söluver |
|
Söluver Miðlunar tekur að sér hverskonar úthringi- og söluverkefni sem felast í jákvæðum samskiptum við fyrirtæki og almenning. Viðskiptavinir okkar nýta þjónustu Söluvers til að selja vörur og þjónustu, bóka sölumenn á fundi, fylgja eftir markpósti, uppfæra viðskiptamannaskrár, afla upplýsinga, styrkja samband við núverandi viðskiptavini og afla nýrra. Hjá Söluveri Miðlunar starfar valinn hópur sölufólks sem vinnur fyrir viðskiptavini okkar af fagmennsku og krafti. Sölufólk Miðlunar selur vörur og þjónustu með hringingum til fyrirtækja og heimila á daginn og kvöldin. Meðal viðskiptavina okkar eru nokkur af stærstu fyrirtækjum landsins á sínu sviði. Starfsfólk Miðlunar býr yfir einstakri reynsluþekkingu á sviði sölumála.
Fjáröflun og rekstur stuðningsmannakerfa Miðlun ehf annast viðskiptatengsl og fjáröflun fyrir mörg af stærstu líknar- og stuðningsfélögum landsins. Meðal viðskiptavina okkar er Krabbameinsfélag Íslands, UNICEF, Blindrafélagið, Geðhjálp, Rauði krossinn, Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna, UMFÍ, SÍBS, Umhyggja, Kraftur, Sjálfsbjörg o.fl. Þjónustan felst í hvers konar fjáröflunarverkefnum, samskiptum við meðlimi, stuðningsaðila og aðra viðskiptamenn. Miðlun stefnir að því að veita slíkum aðilum heildarþjónustu á sviði viðskiptatengsla. Þannig geta viðskiptavinir okkar einbeitt sér að því að veita félagsmönnum sínum og umbjóðendum aukna þjónustu. Innan Miðlunar vinnur stefnumótunarhópur með aðilum innan og utan fyrirtækisins. Þjónusta hópsins er stendur viðskiptavinum okkar til boða þegar setja þarf nýja stefnu eða skerpa áherslurnar. Meðlimir hópsins hafa reynslu af fjáröflunarstörfum, markaðsmálum, almannatengslum og rafrænum samskiptum. Nánari upplýsingar veitir: Andri Árnason |