Skip to content

Miðlun

midlun.jpg
Ráðgjöf um viðskiptatengsl

Dýrmætasta eign hvers fyrirtækis eru viðskiptavinirnir - til að gæta þeirra þurfa fyrirtæki og stofnanir að viðhafa skipulögð og árangusrík viðskiptatengsl.

Miðlun veitir ráðgjöf varðandi viðskiptatengsl. Slík tengsl fela í sér kannanir og skilning á viðhorfum viðskiptavina, góða símaþjónustu og virk samskipti við viðskiptavini. Samskiptaleiðirnar geta falið í sér útsendiefni, símtöl, rafræn fréttabréf eða rafræna samskiptamiðla eins og Facebook og Twitter.

Miðlun veitir ráðgjöf hvað varðar uppbyggingu á sölustarfsemi fyrirtækja. Sölustarfsemi felur í sér söluskipulag, söluferla, markmiðasetningu, skráningu, kalda og heita markhópa ásamt þjálfun og launakerfi sölufólks. Sala er mikilvægt svið innan flestra fyrirtækja, en oft vanrækt.

Með sölu og virkum viðskiptatengslum afla fyrirtæki sér viðskiptavina og halda í þá. Það er mikivægt að gera þessa hluti vel, nýta tækifærin og forðast hætturnar.

Nánari upplýsingar veitir:
Andri Árnason
Netfang: andri(at)midlun.is
Sími: 695 2117